Fréttir

Total items: 1194

5 og 4.flokks mót í fullum gangi!

Dags: 15.11.2008 16:09


hokkifrettamyndir2008/p1000918.jpg

Í dag, laugardag, er annar dagur 5 og 4.flokksmótsins.  Margir leikir hafa verið spilaðir og gleðin skín úr hverju andliti.  Eitthvað hefur verið ábótavant varðandi það að láta iðkendur í 6. og 7.flokki og Skautaskóla vita að þetta mót mundi taka af þeim æfingatímann í dag og er beðist velvirðingar á því.  Leikir í 5. og 4.flokksmótinu halda áfram í dag kl.17:00 og verða einnig í fyrramálið og hefjst leikar kl.07:30 og standa til kl.13:00 en þá verður lokahátíð í Skautahöllinni í Laugardal.  Það er um að gera ef menn eiga leið hjá að skella sér í Skautahöllina og fylgjast með þessum ungu og upprennandi leikmönnum spila skemmtilegt íshokkí.