Dags: 12.11.2008 22:50

Í kvöld áttust við SR og Björninn í Skautahöllinni í Laugardal. Mikil eftirvænting var fyrir leikinn þar sem SR-ingar vildu ná fram hefndum eftir síðasta leik, þar sem Björninn fór með sigur af hólmi 3 - 6. SR-ingar hafa verið að æfa vel undanfarin misseri og hefur Richard haft í nóg að snúast í því að setja upp það leikkerfi sem best gefst fyrir Meistaraflokkinn. Það virðist hafa gengið vel upp í kvöld, það má nærri því segja að um vel smurða vél hafi verið að ræða. Varnarleikur var í fyrirrúmi ásamt beittum sóknarleik.
Fyrsta mark SR-inga skoraði Egill Þormóðsson eftir góðan undirbúning frá bróður sínum Gauta Þormóðssyni. Voru þeir paraðir saman með Þorsteini Björnssyni, sem ákvað að taka fram skautana að nýju eftir sutt og laggott hlé. Annað mark SR-inga skoraði Óskar Einarsson Grönholm með góðu skoti beint frá bláulínunni vel við ísinn og átti markmaður Bjarnarmanna litla möguleika á að verja það. Síðasta mark SR-inga skoraði Daniel Kolar, sem er nýkomin úr velheppnaðri slökinar ferð frá Tékklandi.
Bjarnamann náðu að bíta frá sér í fyrstu og annari lotu en áttu annars fá svör við góðu spili SR-inga þar sem nær allt virtist ganga einsog vel smurð vél, fyrir utan að skora fleiri mörk.
Næstu leikir Meistaraflokks verða á Akureyri dagana 21 og 22. nóvember á Akureyri.
Myndin er fengið "að láni" af mbl.is - Tekin af Kristni Ingvarssyni