Fréttir

Total items: 1194

Æfingarhópur karlalandsliðs Íslands valinn

Dags: 31.10.2008 20:25


front17.jpg

Nýverið birti ÍHÍ listann af leikmönnum sem koma til með að skipa A-landslið Íslands sem fer til keppni í Novi-Sad í Serbíu.  Fátt kemur á óvart í þessum lista þó að það er eitt og annað sem vekur athygli.  Til að mynda er þarna Sergei Zak sem gefur kost á sér í landsliðið í fyrsta skipti eftir að hann fékk íslenskan ríkisborgararétt.  Einnig er fróðlegt að sjá hvað Richard er ófeimin við að skera í burt hið gamla og bæta upp með nýjum og ungum leikmönnum.  Til gamans má geta að á þessum lista er Sergei Zak sá elsti eða 31 árs.  Það sem vekur einnig eftirtekt er hvað margir leikmenn eru spilandi erlendis eða alls 6 leikmenn.  Einnig vekur eftirtekt að varnarjaxlin, norðlensku, Birkir Árnason er ekki á þessum lista en hann hefur verið liðsmaður íslenskalandsliðsins um nokkurt skeið.  En þeir sem verða valdir í þetta lið munu eflaust taka vel á því í Serbíu.

Þeir SR-ingar sem voru valdir í liðið eru:

Ævar Þór Björnsson
Gunnlaugur Thorodssen
 
Guðmundur Björgvinsson
Þórhallur Viðarsson
Egill Þormóðsson
Gauti Þormóðsson
Steinar Páll Veigarsson
Arnþór Bjarnason
Tómas Tjörvi Ómarsson

Hægt er að sjá listann í heildsinni á vef ÍHÍ.