Dags: 30.10.2008 15:16

Við viljum minna á að allir sem ætla með á Brynjumótið þurfa að skrá sig með því að senda tölvupóst á skrifstofa@skautafelag.is. Ferðaáætlunin er þannig að farið verður norður síðdegis á föstudeginum og lagt af stað suður á sunnudagsmorgninum. Það verður því gist í tvær nætur í Stórholti.
Með í för í rútunni verða núverandi og væntanlegir liðsmenn U-18 landsliðsins sem verða í æfingabúðum fyrir norðan. Þetta ætti því að verða skemmtileg ferð.