Fréttir

Total items: 1194

3FL: Markaveisla í Egilshöll í gær

Dags: 29.10.2008 10:52


3.flokkur fór í Grafarvog í gær og spilaði þar við 3.flokk Bjarnarins.  Gengi þessa flokks hefur verið upp og niður í vetur, til að mynda þá hafa þeir unnið SA tvisvar og tapað tvisvar og tapað einum gegn Birninum og unnu síðan í gær.  Bæði lið hafa verið með mikla sóknartilburði vegna þess að í leiknum voru skoruð, hvorki meira né minna en, 23 mörk (!!).  Bjarnarmenn mættu ákveðnir til leiks og náðu strax forystu og komust 2-0 yfir.  SR-ingar náðu að jafan fyrir lok lotunnar.  Í annari lotu skiptust liðinn á að taka forystuna í leiknum en SR náði þó 3 marka forystu, 5 - 8, áður en lotan var búinn.  Í þriðju lotu gáfu liðinn allt sem hægt var í leikinn og skoruðu alls 10 mörk áður en lotan var úti.  Þegar 3 mínútur voru eftir af leiknum var staðan 11 - 11.  SR-ingar náðu að kreista fram sigur á endanum 11-12.

Hér fyrir neðan eru óstaðfest tölfræði fyrir okkar stráka:

Björn Róbert 6
Jón Reyr 2
Úlfur 1
Tómas Örn 1
Arnar 1
Arild 1

Staðfesting og stoðsendingar koma síðar.