Dags: 28.10.2008 13:35
Í kvöld mætast 3.flokkur Skautafélag Reykjavíkur og Björninn í Egilshöll. 3.flokk SR gekk ekki sem skildi í leik helgarinnar við SA, ekki frekar en meistaraflokknum ef útí það er farið. Hinsvegar er í 3.flokki eru margir frískir leikmenn sem eru að styrkjast með hverjum leik. Leikurinn í kvöld hefst, einsog áður sagði, kl.19:00 í Egilshöll og er vert að mæta og sjá hvernig þessum strákum vegna gegn nágrönnum sínum í Grafarvogi.