Fréttir

Total items: 1194

MFL: SR sækir Bjarnarmenn heim !

Dags: 20.10.2008 18:38


SR-ingar, sem eiga harm að hefna, munu halda til Egilshallar annaðkvöld.  Ekki þarf að fara mörgum orðum um síðasta leik þessara liða þar sem SR-ingar biðu afhroð í þeim leik og ætla sér aldrei að upplifa eða spila slíkan leik aftur.  Það mun koma í ljós á morgun hvort að menn standa við stóru orðin.  Bjarnarmenn, sem eru eflaust fullir sjálfstrausts, munu taka á móti SR-ingum af fullum krafti og engin afsláttur gefin.  Þannig að það er skylda allra SR-inga að skella sér í Egilshöll á morgun kl.19:30.

Að öðru...
Gauti nokkur Þormóðsson hefur sagt skilið við Kanada um stundarsakir og gengin í raðir SR-inga en á ný.  Það verður gaman að sjá hvernig hann kemur undan þessari Kanada för, þó stutt hafi hún verið.