Fréttir

Total items: 1194

2FL: SR fer með sigur af hólmi í sínum fyrsta leik!

Dags: 18.10.2008 11:21


Í gærkvöld, rétt undir miðnætti, spiluðu 2.flokkur SR og SA norður á Akureyri.  Akureyringar voru ferskari í upphaf leiks og náðu að skora alls 2 mörk án þess að SR-ingar náðu að svara fyrir sig.  Richard, aðalþjálfari, hefur eflaust haldið smá pistill yfir sínum mönnum inní búningsklefa á milli lota því að SR-ingar komu tvíelfdir til baka og náðua jafna leikinn 2 - 2 í annari lotu.  Í þriðju lotu virðist allt hafa gengið upp hjá okkur mönnum því að þeir röðuðu inn 4 mörkum án þess að SA næði að svara fyrir sig og unnu leikinn sannfærandi 2 - 6.

Einsog þessi leikur spilaðist þá sannast hið forn-kveðna "þetta er ekki búið fyrr en það er búið".

Þessi sömu lið eigast við í kvöld kl.18:00 og verður það áhugavert að sjá hvernig sá leikur fer.  Richard Tahtinen er þess fullviss að strákarnir verða ferskari en í gærkvöldi enda ekki búnir að sitja í rútu alla leið til Akureyrar rétt fyrir leik.

Meira um það síðar.