Fréttir

Total items: 1194

2FL: Norður í dag !

Dags: 17.10.2008 13:02


Strákarnir í 2.flokki SR fara norður yfir heiðar í dag og etja kappi við SA-menn í kvöld og á morgun kl.18:00.   Leiktíminnn í kvöld vekur vissulega athygli vegna hversu seint hann er eða kl.22:00 í kvöld.  En við þessu er lítið að gera og eitthvað sem hokkímenn á öllu landinu verða að sætta sig við einsog staðan er í dag.
Eru þetta fyrstu leikir 2.flokks SR á tímabilinu og verður að gaman að sjá þeim gengur gegn SA-mönnum.  Hægt verður að fylgjast með á vef ÍHÍ (vonandi).  Þannig að allir þeir sem eru á Akureyri, það er um að gera að skella sér á hokkíleik í Skautahöllinni á Akureyri.