Fréttir

Total items: 1194

Línudómaranámskeið og Klukkunámskeið

Dags: 16.10.2008 00:04


Í kvöld mun ÍHÍ standa fyrir línudómaranámskeiði fyrir áhugasama í Egilshöllinni og hefst það kl.21:30.  Farið verður í stutt línudómaranámskeið bæði bóklegt og verklegt á ís.  Eftir námskeiðið verður tekið stutt og laggott próf þar sem menn (og konur) geta reynt á kunnáttu sína sem línudómarar.

Þeir sem eru áhugasamir geta skráð sig í netfangið ihi@ihi.is með nafni og símanúmeri.

Klukkunámskeiðið verður haldið þriðjudagskvöldið 21.október kl.19:15 í Skautahöllinni í Laugardal. Kennt verður á klukkuna og hvernig á að bera sig að við tímavörslu í leikjum.  Þetta er henntugt kunnátta þar sem alltaf vantar fólk við þetta starf í leikjum.