Dags: 03.10.2008 00:00

Á morgun, föstudag, mun Björninn taka á móti Skautafélagi Akureyrar (SA) í Egilshöll bæði í Meistaraflokki og laugardagskvöld mun Björninn spila við SA bæði í Meistaraflokki og í 3.flokki. Hefst leikurinn annaðkvöld á afar ókristilegum tíma eða kl.21:00. Á laugardagskvöldið mun Meistaraflokkurinn byrja að spila kl.19:00 (ögn skárra) og 3.flokkurinn spila beint á eftir eða kl.22:00 (áætlaður tími). Þannig að það er alveg ljóst að þeir sem hafa áhuga á íshokkí ættu að leggja leið sína í bjarnaból Egilshallar og berja þessi tvö lið augum því að það er alveg ljóst að þessi lið eru ekki á því að gefa neinn afslátt þegar kemur að baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.