Dags: 30.09.2008 23:27
Á ári hverju kemur upp umræða innan allra félaga innan íshokkíhreyfingarinnar varðandi dómara. Bæði varðandi skort á dómurum, bæði aðal- og línudómurum, og svo hversu góðir dómarar eru á Íslandi í samaburði við nágrannalönd okkar. Ekki er ætluninn að fara að tíunda það síðarnefnda í þessar grein heldur fara nánar útí það fyrra, þ.e.a.s skortinn á dómurum.
Á ári hverju eru spilaðir fjölmargir leiki í íshokkí í öllum flokkum hjá báðum kynjum. Telja þessir leikir marga tugi og ekki er alltaf auðvelt að manna þessa leiki með dómurum og öðru starfsfólki sökum, en það næst samt fyrir rest. Yfir leitt eru það sömu einstaklingarnir sem taka verkin að sér. Einsog staðan er í dag þá er skortur á aðal- og línudómurum í barna og unglingaflokkum, svo ekki sé minnst á meistaraflokk. Einnig vantar markadómara, klukkuverði og annað starfsfólk sem þarf til að halda einn íshokkíleik. "Margar hendur vinna létt verk" stendur einhver staðar og það á vel við í þessu tilfelli.