Fréttir

Total items: 1194

ATH ATH ATH Ferð norður 26.-28 Sept

Dags: 09.09.2008 12:44


Við viljum minna alla sem ætla með á Akureyri úr 3. 4. og 5. flokk að skrá sig sem fyrst á skrifstofunni eða með því að senda tölvupóst á ishokki@skautafelag.is . Ferðaáætlunin er þannig að 4. og 5. flokkar fara á föstudegi norður og koma til baka á sunnudegi, 3. flokkur fer með meistaraflokk á laugardag og til baka á laugardagskvöld (komið á aðfararnótt sunnudags).

Til að hægt sé að panta réttar stærðir af rútum og réttan fjölda í gistingu er nauðsynlegt að fólk skrái sig sem fyrst. Verð á ferðinni liggur enn ekki alveg ljóst fyrir en skýrist þegar fjöldi iðkenda er þekktur.