Fréttir

Total items: 1194

Starfsmaður á skrifstofu

Dags: 05.09.2008 11:12


Í haust var ráðinn sameiginlegur starfsmaður listhlaupa- og hokkídeildar 
SR sem er við alla daga eftir hádegi. Að gefnu tilefni viljum við benda á 
að þessi starfsmaður hefur ekkert með æfingagjöld, tímaúthlutun eða 
hópaskiptingar að gera. Þessi verkefni eru í dag eins og áður í höndum 
stjórna deildanna. Starfsmanninum er fyrst og fremst ætlað að sinna 
almennri skrifstofuvinnu, innheimtu æfingagjalda, svara almennum 
fyrirspurnum o.þ.h. 
 
Við viljum biðja foreldra að leita til stjórnamanna í deildunum varðandi 
allar fyrirspurnir eða athugasemdir varðandi æfingagjöld (annað en 
greiðslumáta), tímaúthlutun og hópaskiptingar.

 

                                                                                          kv hokkístjórnin