Fréttir

Total items: 1194

Laugardagurinn 6.sept

Dags: 04.09.2008 13:03


Einsog rætt var á foreldrafundinum þann 30 ágúst. þá munum við vera með afdrep fyrir foreldra í fundarherberginu á meðan á laugardags æfingum stendur. Hugmyndin er að koma foreldrahópnum betur saman og stunda skemmtilega iðju einsog t.d. líma límmiða á tyggjópakka :) 

Við hvetjum auðvita alla til að mæta og hjálpa til .

 

Einnig kom upp sú hugmynd að bjóða fólki sem vantar að losna við gamalt hokkídót eða er í leit að notuðu(en nánast nýju)að hafa óformlegan skiftimarkað á þessum tíma. Við viljum þvi bjóða öllum sem vilja að mæta með dótið sitt á laugardaginn og sjá hvort ekki sé hægt að koma því í not. Við viljum þó benda á að allur búnaður er algerlega á ábyrgð þess sem er að selja hann.

 

Í öðrum fréttum er það helst að nú er búið að bæta in link á ensku útgáfun af stefnu hokkídeildar SR.

Þetta er mun ítarlegra en ísl samantektin sem var fyrir. Hægt er að fá fullu útgáfunu á ensku með því að smella hérna.

 

 

Að lokum viljum við minna alla foreldra úr 4. og 5 flokk að við munum senda út póst fyrir vikulok vegna ferðar norður til Akureyrar 26-28 Sept á bikarmót. Það er áríðandi að allir svara þeim pósti sem fyrst svo hægt sé að áætla fjölda í gistingu.