Fréttir

Total items: 1194

Til HAMINGJU ÍSLANDSMEISTARAR 2FL. !!

Dags: 18.04.2008 13:36


Í gærkvöldi fór fram í Egilshöll úrslitaleikur milli SR og Bjarnarins.

Því miður hefur ekki enn borist formleg leikskýrsla en Raggi, Pétur og
Kristján skoruðu mörk og Bjössi (Björn Róbert Sigurðsson í 4.fl.)
skoraði glæsilega lokamarkið, ekki liggja fyrir nægjanlegar upplýsingar
um stoðsendingar né er ábyrgð tekin á þessum markaupplýsingum.
Aðalmálið var að þeir unnu....

Þegar aðeins 5 mínútur voru til leiksloka var staðan 5-3 SR í óhag.
Hefði Björninn skorað 2 mörk í viðbót án marka frá SR hefðu SA og SR
haft sömu markatölu sem og stigafjöldja, sem hefði þýtt leikir milli
liðanna.

En sem betur fer spýttu okkar drengir í lófana og þrumuðu pekkinum í
tvígang í markið og náðu að jafna stöðuna og taka bikarinn með heim í
Laugardal. Sannarlega ánægjulegt og vel af sér vikið. Við óskum ykkur
öllum innilega til hamingju strákar, þetta lofar góðu fyrir næsta
vetur!!