Dags: 13.04.2008 21:16
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is
Yfir áttatíu af efnilegustu íshokkíleikmönnum beggja vegna Atlantsála
eru komnir hingað til lands til æfinga og keppni í Egilshöll í fjóra
daga. Þetta eru strákar á aldrinum 12-14 ára og taka tólf íslenskir
leikmenn frá þremur skautafélögum þátt í mótinu, sem nefnist World
Selects.
Í hópnum sem hér er á ferðinni er úrval þeirra bestu í heimi, og er
hann á vegum samtaka sem heita Selects Hockey, en undanfarin ár hafa um
15-20% leikmanna úr þeirra röðum endað í NHL-deildinni í íshokkíi.
Leikmennirnir ungu koma úr liðum víðsvegar að úr heiminum, m.a. frá
Bandaríkjunum, Kanada, Tékklandi, Rússlandi, Svíþjóð og Finnlandi. Í
fylgd með þeim er hópur um sextíu þjálfara og foreldra. Þeirra á meðal
eru þjálfarar sem spilað hafa í NHL-deildinni.
Það er mjög spennandi og skemmtilegt fyrir strákana okkar að fá hingað
þá bestu, bæði þjálfara og leikmenn, til að æfa með og keppa við,
segir Sergei Zak, yfirþjálfari skautafélagsins Bjarnarins og
landsliðsþjálfari U18-liðsins, sem hefur haft veg og vanda af
undirbúningi mótsins.
(þessi grein birtist á baksíðu Morgunblaðsins 12. apríl 2008)
Foreldrar og strákar athugið að öllum er frjálst að koma í Egilshöllina
og fylgjast með þessa daga sem mótið stendur.