Dags: 13.04.2008 14:44
Mjög góð mæting og fanta góð stemming á var á áhorfendapöllunum i
Egilshöll sl. fimmtudag í úrslitaleik 4a-SR og Bjarnaris. Leikurinn var
jafn og ákaflega spennandi. Birninum nægði jafntefli til að hampa
titlinum en SR-ingar urðu að hafa sigur og svo fór á endanum að
SR-ingar náðu að setja mark þegar tæpar tvær mínútur lifðu leik. Þar
var að verki Sindri Gíslason eftir stoðsendingu frá Jóni Rey
Jóhannessyni. SR-ingar hampa því titlinum í 4. flokki þetta timabilið.
Um daginn kláraðist einnig keppni í 3. flokki og þar fór Björninn með
sigur af hólmi og SR fékk silfrið.
17. apríl kl. 20 fer svo fram í Egilshöll ÚRSLITLAEIKUR í 2fl. BJÖRNINN-SR.