Fréttir

Total items: 1194

Úrslitakeppnin

Dags: 11.04.2008 00:17


Eins og þeir sem hafa fylgst með m.a. á netinu gekk á ýmsu í úrslitakeppninni. SR vann fyrsta leikinn, en tefldi fram leikmanni sem SA taldi vera ólöglegann, þannig að SA kærðu úrslit þess leiks. SA vann leik 2. leik, SR 3. leik og SA 4. leik.

Kæra SA fékk flýtimeðferð og úrskurðurinn var SA í vil, að Emil hafði verið ólöglegur, sem þýðir að SA eru Íslandsmeistarar samkvæmt því. SR ákvað hins vegar að áfrýja þeim úrskurði og verður áfrýjunin tekin fyrir um miðja næstu viku.

Upphaflega stóð til að leika 5. og síðasta úrslitaleikinn samkvæmt dagskrá, en síðan var honum frestað um óákveðinn tíma þar til úrskurður vegna áfrýjunarinnar lægi fyrir þar sem úrsllit lægu fyrir miðað við núverandi stöðu. SA er með vinning í þremur leikjum og SR einum.

Í þessu máli er tekist á um mismunandi túlkanir á félagaskiptareglum ÍHÍ.

hv