Dags: 27.03.2008 13:08
2. flokkur á eftir að spila tvo leiki við Björninn, það eru tveir síðustu leikinrni í þeim flokki. Ekki er ennþá ljóst hvenær þeir verða, vegna breytinga sem gerðar voru á leikjaplaninu, m.a. vegna úrslitakeppninnar og HM karla sem hefst 4. apríl verða þessir leikir ekki smkv. áætlun. Staðan í öðrum flokki er sú að SA er 3 stigum fyrir ofan SR þannig að SR þarf að vinna annan leikinn og gera jafnt í hinum til að vera öruggir með Íslandsmeistaratitili í þessum flokki. Ef hins vegar SA og SR verða jöfn að stigum eftir þessa leiki þá ræður markatala og eins og er er hún SA hagstæðari. Sjá má stöðuna á síðu ÍHÍ, www.ihi.is. hv