Dags: 15.03.2008 11:36
Leikurinn í gær í 2. fl. fór 7 -7, þannig að staðan á milli liðanna er óbreytt, og leikurinn í kvöld skiptir bæði lið öllu máli. Á síðu ÍHÍ má sjá aðeins umfjöllun um leikinn http://www.ihi.is/?webID=1&i=2&a=read_artical&id=2050 Þegar þetta er skrifað þá er kvennlandsliðið að spila við kvennalið frá Amager Jets í Danmörku sem er hérna í heimsókn, í Skautahöllinni í Laugardal. Þessi lið etja síðan aftur kappi saman á morgun sunnudag kl. 18:00 í Egilshöll og er sá leikur líka liður í fjáröflun fyrir stelpurnar fyrir ferð þeirra á HM í Rúmeníu á næstunni. Landsbankamótið hófst í morgun með leik SR og SA í 5. fl., það heldur síðan áfram til 19:55 í kvöld og byrjar aftur í fyrramálið kl. 07:50. hv