Fréttir

Total items: 1194

Leikur kvöldsins

Dags: 12.03.2008 20:15


Vegna tæknilegra vandamála er ekki hægt að lýsa leiknum beint á netinu eins og ætlunin var, þannig að við reynum að koma upplýsingum um framgang leiksins hérna eins og hægt er. Markalaust er eftir fyrsta leikhluta. Fyrsta mark SR skoraði Gauti Þormóðsson eftir stoðsendingu frá Martin Soucek, þegar tæpar 5 mínutur voru liðnar af öðrum leikhluta. Annað mark SR skorar Stefán Hrafnsson eftir stoðsendingu frá Steinari Pál Veigarssyni á sextándu mínútu annars leikhluta. Fyrsta mark Bjarnarins á Trausti Bergmann eftir stoðsendingu frá Kóp Guðjónssyni og Sergei Zak á átjándu mínútu annars leikhluta. Staðan að loknum öðrum leikhluta 2 - 1 fyrir SR. Annað mark Bjarnarins skoraði Sergei Zak eftir stoðsendingu frá Vilhelm Má Bjarnasyni á sjöundu mínútu þriðja leihluta. Þriðja mark SR Stefán Hrafnsson án stoðsendingar á áttundu mínútu þriðja leikhluta. Fjórða mark SR Daniel Kolar án stoðsendingar á sextándu mínútu þriðja leikhluta. Lokastaðan 4 - 2 fyrir SR, í hröðum og spennandi leik.   hv