Bikarmót 5.- 6. og 7.flokks á Akureyri, 22.-24 febrúar 2008
Dags: 18.02.2008 09:43
BIKARMÓT Á AKUREYRI, 22.-24 febrúar 2008
Kæru foreldrar og forráðamenn.
Mikill og góður hópur fer norður heiðar - sem er afskaplega ánægjulegt, við erum
enn fleiri heldur en í nóv. á Brynjumótinu, Við verðum tæplega sjötíu manns!!
Þetta er mikil og stór helgi á Akureyri, fólk á skiðum og stór boltamót barna.
Þar sem við gátum ekki staðfest gistingu svo snemma, sem um miðjan janúar fyrir
allan þennan fjölda, höfum við aðeins pláss fyrir 51 í Gistiheimilinu Stórholti
1. Þvi verður að gista á tveimur stöðum. Gist verður einnig í gistiheimlinu Súlum,
Þórunnarstræti 93.
Sökum þessa mikla fjölda þarf eflaust líka að taka 2 rútur, þar sem mikill farangur
fylgir hokkíspilurum ?
Við biðjum alla foreldra og þátttakendur að sýna þessu skilning og jákvæðni,
besta fréttin er hversu mikil vakning hefur orðið í íshokkí. Bíður okkar mikið
ævintýri og fjör næstu helgi.
Leikjaplan.
Fyrstu leikir byrja á laugardagsmorgni (á bilinu 8 til 9), þá er spilað fram
eftir degi. Mótinu lýkur svo um hádegi á sunnudag. Leikjadagskráin kemur í vikunni.
Brottför og heimkoma
Mæting föstud. kl. 13.30 Skautahöllinni í Laugardal.
Komutími sunnudag. 20-21 Skautahöllinni í Laugardal.
Foreldrar þurfa að yfirfara allan hokkíbúnað keppenda fyrir ferðina. Athuga hvort
skrúfur í hjálmum séu lausar eða vanti, skautar skerptir, kylfuteip og þeir sem
nota legghlífateip. Aukanærföt og handklæði í hokkítöskunni.
AÐEINS AÐ PAKKA NIÐUR ÞVÍ SEM VIÐKEMUR HÓKKÍ Í HOKKÍTÖSKURNAR.
Verð
Fyrir þá sem fara með rútunni og eru í sameiginlegu gistingunni, er séð um allt
sem tengist mat.
áætlað verð kr. 12.000-, það er allt innifalið í því. Á þriðjudag kemur staðfest
verð.
Systkinaafsláttur 50% á annað.
Foreldrar sem fara með í rútu, gistingu og öllu eru 4.500. þús kr. sama verð
er fyrir þá sem bara í gistingu.
Foreldrar athugið að ferðin er á vegum SR en allt vinnuframlag er foreldranna.
NÁNARI FRÉTTIR KOMA Á ÞRIÐJUDAG. FYLGJAST VEL MEÐ PÓSTI.