Dags: 06.02.2008 12:49
Árið 2008 veitir Reykjavíkurborg samtals 25.000 kr. í frístundastyrki.
Foreldrar sem nýta sér það þurfa að fara aftur inn á rvk.is - rafræn reykjavík
og setja inn þá upphæð sem ráðstafa á til Skautafélags Reykjavíkur - íshokkídeild.
Þeir foreldrar sem eru að koma nýir inn - viljum við byrja á að bjóða velkomna
í SR - en jafnframt að útskýra hvernig ráðstöfun Frístundakortsins virkar hjá
okkar félagi:
1. Barn er skráð á þartiltæk eyðublöð á skrifstofu.
2. Æfingagjöld gerð upp að fullu.
3. Foreldri gerir ráðstafanir styrks samkvæmt fyrirmælum á rvk.is
4. SR greiðir á uppgefna bankareikninga foreldra 15. hvers mánaðar.
Minni á að greitt verður til félaga vegna þeirra iðkenda sem ráðstafa
1.-31. Janúar um miðjan febrúar.
Næsta greiðsla kemur síðan um miðjan mars vegna þeirra sem ráðstafa í
febrúar. o.sv.fr.
Þeir sem þurfa nánari upplýsingar um Frístundakortið er bent á að hafa samband við:
Sólveig Valgeirsdóttir
Verkefnastjóri frístundakorta
Íþrótta- og tómstundasvið
Bæjarhálsi 1
S. 4115080 Gsm. 6955141
www.itr.is