Fréttir

Total items: 1194

Reykjavík International 2008 - Alþjóðlegt íþróttamót

Dags: 16.01.2008 15:00


Í ár munu fjölmörg íþróttafélög undir forystu Íþróttabandalags Reykjavíkur og með stuðningi Reykjavíkurborgar standa að alþjóðlegu íþróttamóti. Síðustu ár hafa sundfélagið Ægir og frjálsíþróttadeild ÍR staðið að alþjóðlegu mótahaldi í janúar og hefur það mótahald vaxið og dafnað vel. Svo vel hefur gengið að ákveðið hefur verið að ganga skrefi lengra og fá fleiri íþróttafélög til þess að halda mót á sama tíma.  Samtals verður keppt í 9 íþróttgreinum og því verður landsmönnum öllum boðið upp á fjölbreytta íþróttaveislu þar sem yfir 2000 keppendur munu taka þátt. Stefnt er að því að innan 5 ára verði allt mótahaldið með alþjóðlegum hætti þar sem íþróttamenn geta unnið sig inn á stórmót eins og Ólympíuleika og heimsmeistaramót.
 
Íþróttabandalag Reykjavíkur mun aðstoða við skipulag mótsins en þess má geta að ÍBR sá um framkvæmd á Alþjóðaleikum Ungmenna 2007(ICG 2007) og er einnig framkvæmdaaðili að Reykjavíkurmaraþoni Glitnis. Hvoru tveggja íþróttaviðburðir sem drógu þúsundir útlendinga til landsins og vöktu mikla athygli.
 
Það verður mikið um dýrðir í Laugardalnum á meðan þessi íþróttaveisla fer fram og standa vonir til að fjölskyldur fjölmenni í dalinn til þess að taka þátt í skemmtuninni.
 
 
MUNIÐ – Áhorfendur eru velkomnir á opnunar- og lokahátíð og á allar keppnisgreinar.     Hægt er að nálgast dagskrá mótsins hérna