Dags: 18.11.2007 20:28
Þá er Brynjumótinu lokið. Búið að vera mjög gaman og allir gert sitt besta. Í mótum eins og þessu hefur ekki verið til að telja mörk og stöðu liða, en það er alltaf gaman að fylgjast með hvað krakkarnir fylgjast með þessu sjálf til að vita stöðu síns líðs. En hvernig sem gengur þá hafa allir gaman af og sérstaklega gaman að sjá framfarirnar með hverjum leik. Við þökkum SA fyrir vel heppnað mót. HV