Dags: 26.09.2007 08:46
Næstkomandi föstudag, þann 28. September, er iðkendum, bæði úr íshokkí- og listhlaupadeild, og fjölskyldum þeirra boðið á skauta. Fjörið hefst kl 20:00 og stendur til 22:00. Við viljum sérstaklega hvetja foreldra til að mæta með krökkunum og gera þetta að sannkallaðri fjölskylduhátíð. Vinsamlegast athugið að skautafjörið er einungis ætlað iðkendum og fjölskyldum þeirra.