Fréttir

Total items: 1194

Finnar og Kanadamenn í úrslit !

Dags: 12.05.2007 20:04


_mg_4930z_upload.jpg

Í dag varð það ljóst hverjir komust í úrslit í heimsmeistarakeppninni í íshokkí karla. Finnar náðu að merja fram nauman sigur gegn sterkum rússum í spennandi leik í dag þegar þeir sigruðu 2 - 1 eftir framlengdan leik. Mikka Koivu skoraði sigurmark Finna þegar stutt var liðið á framlenginuna. Áfallið var gríðarlegt fyrir Rússa sem voru með ansi sterkt lið þetta árið og ætluðu sér að sigra mótið í ár. Kanadamenn áttu annars auðveldan leik gegn andlausum Svíum sem máttu sín lítils gegn hörðu og ákveðnu liði Kanada.

Gullmedalíu-leikurinn verður sýndur beint á RÚV á morgun kl.16:05 á morgun sunnudag.