Fréttir

Total items: 1194

Jafn og spennandi leikur í gærkvöld

Dags: 24.04.2007 10:53


img_4163.jpg

Þeir fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína norður til Akureyrar urðu ekki fyrir vonbrigðum með leik gærkvöldsins. Leikurinn var einsog alvöru úrslitaleikir eiga að vera hnífjafnir alveg fram í fingurgóma. Heimamenn náðu að opna markareikninginn og þar var Tomas Fiala að verki í tvö fyrstu skiptin með aðstoð frá Jón nokkrum Gíslasyni. SR-ingar voru poll-rólegir þegar þessi staða kom upp og ekki var farið að neinu óðslega í þeirra leik. Vitað var fyrirfram að leikurinn mundi vera langhlaup og taktík mundi spila stórt hlutverk í leik liðanna. SR-ingar náðu að svara fyrir sig áður en lotan var úti og var þar að verki Gauti Þorðmóðsson og Mirek hinn knái Krivanek og staðan jöfn eftir fyrsta leikhluta. Stuttu eftir að annar leikhluti hófst náði Rúnar Freyr Rúnarsson að skora eftir gott powerplay þeirra Elvars Jónsteinssonar og Sigurðar Sigurðarsonar. Staðn orðin nokkuð vænleg fyrir heimamenn. Stuttu síðar náði Mirek Krivanek pekkinum og tók á rás á mark SA-manna og skoraði örugglega. Staðin orðin jöfn 3 - 3 og leikurinn í járnum. Á þessum tímapunkti fóru bæði liði töluvert í refsiboxið og litaði það vel leik liðanna. Þrátt fyrir miklar sóknir beggjaliða náðu þau ekki að nýta power-play sín sem skildi. Þegar rétt tæpar 30 sekúndur voru til loka annars leikhluta náðu þeir bræður Egill og Gauti Þormóðssynir fanta góðu spili inní svæði SA-manna og uppskáru verðskuldað mark. Staðin orðin 4 - 3 fyrir SR og spennan í hámarki þegar öðrum leikhluta er lokið. Í þriðja leikhluta var ljóst að SR-ingar mundu spila sterkt varnar-hokký og spila öruggt. Sú varð rauninn en þó var töluvert um refsingar og á tímabili voru SR-ingar 3 á móti 5 leikmönnum SA en það náðu SA-menn ekki að nýta sér þar sem Penalty-kill SR-ingar var firnar-sterkt og leikurinn endaði með sigri SR-ingar 4 - 3. SA-menn voru augljóslega sárir eftir að hafa misst tækifærið að sigra íslandsmeistaratitillinn á heimavelli. Næsti leikur verður í Laugardalnum á miðvikudag (á morgun) en símasetning er ekki alveg kominn en hún verður sett hér á netið við fyrsta tækifæri.