Dags: 21.04.2007 13:16
Þriðji leikur í úrslitum verður í dag, laugardag, og hefst leikurinn kl.17:00 sem er nýlunda hér í Reykjavík þar sem yfirleitt hafa þessir leikir byrjað kl.20 eða þaðan af seinna. Staðan í einvíginu er 1 - 1 og allt getur gerst. Bæði lið hafa náð að sigra sína útileiki sem er nokkuð sérstakt og verður gaman að sjá hvernig fer í dag þegar Akureyringar koma til Skautahöllina í Laugardal, eflaust til að sækja sigur.... en ekki ef SR-ingar fá einhverju ráðið.... Það er semsagt SKYLDUMÆTING FYRIR ALLA SR-INGA í skautahöllina í dag kl.17:00