Dags: 18.04.2007 23:26
Fátt var um fína drætti hjá SR-ingum í leik þeirra síðasta þriðjudag þegar þeir tókust á við SA í Laugardalnum. Þó að SR-ingar hafi byrjað betur með mörkum frá Stefáni "Rauða" Hrafnssyni og Daniel Kolar strax í fyrstu lotu þá var það ekki vísir af góðu áframhaldi, síður en svo. Akureyringar voru heldur rólegri í leik sínum í upphafi leiks en óx síðan ásmeginn þegar leið á leikinn. SR-ingar áttu fá svör við annar ágætum leik SA-manna. Greinileg þreyta var farinn að gera vart við sig hjá SR-ingum sem hafa verið iðnir við kolann undanfarnar vikur... bæði með landsliði og sínu félagsliði.
En ekki þýðir að bera við þreytu þegar komið er inn í úrslitakeppni og nú verða SR-ingar að herða sig og setja á fullt stím áfram og sigra næstu leiki til að halda í Íslandsmeistaratitillinn.
Undanfarin ár hafa bæði SR og SA skipt með sér Íslandsmeistaratitlinum og þá nánast undantekningarlaust hefur það verið annaðhvort liðið sem hefur unnið þrjá leiki í röð og hampað Íslandsmeistaratitlinum. Undantekningin er þó að SA spilaði við Björninn til úrslita árið 2001 (eina árið sem SR hefur ekki verið í úrslitum) og átti SA þá við ofurefli að etja þar sem Björninn hafði mikinn fjölda erlendra leikmanna eða 7 leikmenn. Leikurinn byrjar norður á Akureyri kl.18:00 stundvíslega samkvæmt þeim heimildum sem er að finna á www.ihi.is. Við hvetjum alla til að mæta í höllina og hverja sína menn
Áfram SR!!!