Fréttir

Total items: 1194

MFL: Tveir leikir um helgina

Dags: 12.04.2007 12:47


Síðustu tveir meistaraflokksleikir fyrir úrslit verða núna um helgina.  Eru þetta leikir á milli SR og SA.  Fyrri leikurinn verður spilaður á föstudagskvöldið kl.20 í Skautahöllinni á Akureyri.
SR-ingar eru að vanda borubrattir fyrir þessa leiki einsog aðra.  Gengi Meistaraflokks SR hefur verið upp og niður þetta tímabilið ólíkt síðasta tímabili þar sem SR-ingar töpuðu einum leik yfir allt tímabilið og úrslit.  Hefur það valdið því að Ed Maggiacomo hefur þurft að aðlaga leik liðsins eftir því.  Bæði lið eiga leikmenn í Karlalandsliði Íslands sem var að koma til landsins frá S-Kóreu nú á dögunum.  Fyrir leikinn eru SR-ingar nokkuð sigurstranglegir þar sem þeir eru með alls 11 landsliðsleikmenn innanborðs og þar meðtalinn landsliðsmarkmanninn Birgir Örn Sveinsson sem fór á kostum í S-Kóreu og var valinn maður liðsins yfir mótið.   Þó að þessar tölulegu upplýsingar eru afskaplega heillandi þá hefur það sýnt sig að ekki ber að vanmeta Akureyrarmenn þar sem þeir eru með gott bland af ungum og efnilegum leikmönnum og eldri leikmönnum sem eru "komnir yfir síðasta söludag", einsog segir á sasport.is.  Fróðlegt verður að sjá hvort að SR nái að standast væntingar og hvort að SA nái að veita þeim öfluga keppni núna um helgina.