Fréttir

Total items: 1194

MFL: Naumur sigur gegn Birninum...

Dags: 23.03.2007 19:06


Meistaraflokkar SR og Bjarnarins mættust síðastliðið miðvikudagskvöld kl.20:30 í Skautahöllinni í Laugardal. Þeir sem gerður sér ferð niður í skautahöllina áttu síst vona á janf ótrúlegum leik og raunin varð. Strax í upphafi leiks var ljóst að Bjarnarmenn voru ekki komnir til að láta SR vinna sig auðveldlega og komu grimmir og ákveðnir til leiks. SR-ingar voru ekki alveg tilbúnir í slík átök strax í upphafi og mátti sjá töluvert ryð í leikmönnum SR. En fljótt dró til tíðinda og voru það SR-ingar sem skoruðu fyrsta mark leiksins. Var að verki Egill Þormóðsson, sem var nýkomin frá Kína með U18 landsliði Íslands, og var bersýnilega ekkert ryð á honum.... fjarri því. Daniel Kolar fylgdi síðan rétt í kjölfarið eftir að hafa vöðlað sig í gegnum vörn Bjarnarmanna svona löturhægt og skaut pekkinum inn í mark Bjarnarmanna. Við þetta mark virtust SR-ingar nokkuð vissir um að þetta mundi vera auðveldur og léttur sigur-leikur fyrir Sr-inga. Stuttu áður en lotunni lauk náði hin knái leikmaður Bjarnarins að sigla ínní landhelgi SR-ingar, hringsóla þar í dágóða stund og síðan skjóta pekkinum af miklu öryggi í mark Sr-inga.

Í annari lotu var svipað uppá teningnum þar sem SR-ingar voru í bílstjórasætinu en Björninn var aldei langt undan. Daniel Kolar, Gaut Þormóðss og Kári "Þrumufleygur" Valsson áttu mörk lotunar. Enn og aftur voru SR-ingar vissir um að núna væru þeir með unninn leik í höndunum.... aldeils ekki. Bjarnarmenn komu dýrvitlausir í síðasta leikhlutann og á aðeins einni og hálfri mínútu náður þeir að setja 2 mörk og bæta stöðu sína töluvert. SR-ingar þurftu nú enn að gefa í til að missa ekki leikinn út höndum sér. Það gerðu þeir og náðu vel að nýta þau færi sem eftir lifði leiks, sum færin komu nánast gefis.


Hægt er að sjá s tölulegar upplýsingar um leikinn hér