Fréttir

Total items: 1194

U18: Strákarnir að gera góða hluti í Kína !

Dags: 09.03.2007 10:04


yf3i5495.jpg

Strákarnir í landsliði Íslands skipað leikmönnum 18 ára og yngir er að gera góða hluti í Peking, Kína, um þessar mundir.  Þeir byrjuðu að salta Tyrki ,16-1, og síðan tóku þeir Suður Afríku 14 - 2 í léttum leik er sagt.  Þeim munaði ekki um það að rífa sig á lappir eldsnemma á hvíldardaginn og skunda uppá kínamúrinn og taka létta gönguæfingu. 
Daginn eftir , eða í gær, spiluðu þeir síðan við heimamenn, Kínverja, og urður að bíða í lægra haldi fyrir þeim 6 - 3.  Hægt er að sjá umfjöllun um leikinn hér.  Í dag eru þeir að spila við Nýsjálendinga og samkvæmt nýjustu fregnum þá voru Íslendingar yfir 4 - 0.  Meira um þann leik á www.ihi.is þegar fréttir berast.

Hægt er að sjá myndir frá leikjum Íslendingana hér.

Fyrir þá sem eru fíklar í tölulegar upplýsingar um mótið þá er þær að finna hér   Myndinn er frá Kristjáni Maack.