Dags: 09.03.2007 10:00

Nýverið fóru 3 og 4.flokkur SR til Danmerkur í íshokkí ævintýraferð. Þeir voru
ekki fyrr lenntir en þeir skelltu sér í rútu og beina leið í Skautahöllina hjá
Rödovre Mighty Bulls og horfðu á leik Rödovre og Odense Bulldogs sem lauk með
sigri Bulldogs 6-5 eftir mikinn átakaleik og framlengingu.
Liðið fór síðan í Sporthótelið hjá Gladsaxe þar sem allir sváfu eftir viðburðaríkan
dag. Strax morguninn eftir fóru bæði lið á morgunæfingu í Skautahöllinni í Gladsaxe.
Strax eftir æfingu var farið í menningarferð til Kronberg kastala í Helsingör.
Eftir að hafa skoðað sig um í kastalanum og eytt einhverjum tíma í verslunum fór
liðið í sundlaugina í Gladsaxe til að láta þreytuna líða úr sér.
Á laugardagsmorgninum var farið og verslað í Maxwell GO! Custum Hockey Shop og þar virtust vera bleikir hokkýhanskar hvað vinnsælastir. Eftir góða gönguferð um Strikið var farið til KSF í Österbro þar sem spilaðir voru tveir góðir leikir við
Morguninn eftir spiluðu strákarnir við Gladsaxe Bears og var það endapunkturinn á þessar stórskemmtilegu ferð til Danaveldis. Í þessari ferð fengu 4.flokksmenn kynningu á því hvernig á að nota skrokkinn í íshokkí (Bodycontact) og 3 flokkurinn vann einn leik og tapaði einum. Þetta var sérlega skemmtileg reynsla við aðalþjálfara SR þar sem strákarnir voru að spila við gömlu klúbbana þar sem Ed þjálfaði í Danmörku. Dönunum þótti mikið til koma hve góðir okkar strákar voru og á hvaða getustigi þeir væru á. Á þriðjaflokks leiknum var gamall kunningi Eds, Mike Sirant, sem er landsliðsþjálfari Dana um þessar mundir.
Fyrir hönd foreldra, þjálfaranna Gumma, Todd og Ed viljum við senda bestu þakkir fyrir að gera þessa ferð sem ógleymanlegasta