Fréttir

Total items: 1194

2FL: Náðu ekki að knýja fram sigur !

Dags: 25.02.2007 15:58


SR-ingar náðu ekki að fylgja sigri gærkvöldsins eftir í leik dagsins.  Leikurinn í dag var nokkuð spennandi framan af þar sem bæði lið sóttu stíft. Akureyringar voru fyrri til að skora í þessum leik en SR-ingar voru aldrei langt á eftir.  Það var ekki fyrr en í síðari hluta leiksins þegar SA strákar náðu skora ein þrjú mörk án þess að SR-ingar náðu að svara fyrir sig.  Það var ekki fyrr en rétt í enda leiksins sem SR-ingar rétt náðu að klóra í bakkann með góðu marki hjá Agli Þormóðssyni. Einhverja leikmenn vantaði í bæði lið en það virtist ekki koma mikið að sök.  Leikurinn endaði 4 - 2 fyrir SA-strákum.  Mörk SR-skoruðu þeir Ragnar Kristjánsson og Egill Þormóðsson.