Dags: 24.02.2007 21:41
SR-ingar voru sterkari aðilinn í leik kvöldsins þegar þeir lögðu SA-menn með 4 mörkum gegn 3 í spennandi leik. Þeir sem lögðu leið sína niður í Skautahöllina í Laugardal voru ekki sviknir þar sem þessi leikur var hin besta skemmtun. Liðinn skiptust á að sækja og voru það markmenn liðanna sem riðu oft baggamuninn. Athygli vakti að í liði SR voru mjög ungir leikmenn, þeir Tómas Tjörvi og Björn Róbert. Sá síðarnefndi er ekki nema 13 ára. Að öðrum ólöstuðum voru þeir Úlfar Jón Andrésson, Egill Þormóðsson og Steinar Páll Veigarsson hvað atkvæðamestir hjá SR. Meira um leikinn síðar.