Fréttir

Total items: 1194

2FL: Tveir leikir um helgina !!

Dags: 23.02.2007 19:30


Annar flokkur Skautafélags Akureyrar mun heimsækja SR-inga núna um helgina. Á þessari helgi verða spilaðir 2 leikir, fyrri leikurinn verður á laugardagskvöldið kl.19:00 og seinni leikurinn verður á sunnudagsmorgun kl.09:00. Þessir leikmenn eiga ekki í vandræðum með að spila tvo svona leiki á sömu helginni enda frískir strákar hér á ferð sem eru margir hverjir að undirbúa sig undir komandi átök með landsliði Íslands sem heldur annarsvegar til Kína núna í byrjun mars (U18 landslið) og til Suður-Kóreu (karla landslið). Allir áhugamenn um íshokkí eru hvattir til að mæta í Skautahöllina í Laugardal og horfa á þessa leiki þar sem þessi aldursflokkur gefur meistaraflokkunum ekkert eftir... Áfram SR !!