Dags: 09.02.2007 15:51
Í leik liðanna á þriðjudaginn síðasta var Björninn yfirsterkari á lokasprettinum. SR-ingar byrjuðu vel og náðu góðu forskoti í fyrsta leikhluta leiksins en eftir hann var staðan 2 - 0 SR í hag. Einsog oft vill verða þegar lið ná góðu dampi í fyrsta leikhluta vildi annar leikhlutinn ekki fara alveg á sama veg. Reyndar hefur það lengi loðað við Meistaraflokk SR að þeir hafa nær alltaf átt dapra aðra lotu í leikjum sínum. Þessi leikur var þar engin undantekning og náðu Bjarnarmenn að jafna leikinn og gott betur í öðrum leikhluta og voru gestunum , SR-ingum, ekki sýnd nein miskun. Þegar komið var í þriðja og síðasta leikhlutann var staðan jöfn eða 4 - 4. Ekki þýddi annað en að taka á stóra sínum og klára leikinn. SR-ingar spiluðu ekki sinn leik og áttu í mestu erfiðleikum með lið Bjarnarins þar sem þeir sóttu án aflást. SR-ingar gerðust sekir um heimskuleg brot og mistök á viðkæmum stundum í leikhlutan sem Bjarnarmenn áðu að nýta sér til fulls.
Ekki verður það tekið af Bjarnarmönnum að þeir spiluðu fanta vel í leiknum og áttu sigurinn fyllilega skilið.
SR-ingar þurfa nú að endurskipuleggja sína taktík ef þeir ætla sér að ná að halda sér í úrslitasæti, vinna heimaleikjarétt og negla Íslandsmeistaratitillinn í Reykjavík .. eitt ár í viðbót.