Fréttir

Total items: 1194

MFL: SR sækir Björninn heim á morgun kl.19:30

Dags: 05.02.2007 17:29


Hinn sigursæli Meistaraflokkur SR mun heimsækja Björninn á morgun kl.19:30. Björninn lék um nýliðnahelgi við SA þar sem gestirnir náðu á loka mínútunum að kreista fram sigur. Í þeim leik sýndi Björninn klærnar svo um munaði og á tímabili leit út fyrir að SA næði ekki að verjast leiftur-snöggum Bjarnarmönnum. Í þeim leik voru þeir Jón Gíslason, Alexi Al-althi og Sergei Zak hvað atkvæðamestir. Sá síðastnefndi sýndi oft á tíðum listartakta þar sem hann dansaði á bláu línunni með pökkinn og skildi SA menn eftir í ryki. Þrátt fyrir þau dansatriði náðu Bjarnarmenn ekki að tryggja sér verðskuldaðan sigur og urðu að lúta í lægrahaldi fyrir SA-mönnum, 5 - 4.

SR-ingar hafa á undanförnum misserum haldið góðum takti og unnið hvern sigurinn á fætur öðrum. SR-ingar hafa verið nokkuð sigursælir gegn Bjarnarmönnum og ekki er það á stefnuskránni að breyta því. Bjarnarmenn hafa nú endurheimt flest alla sýna menn úr leikbönnum og Guðmundir Borgar er komin aftur í vörnina úr "launalausu fríi" ... hvað sem það nú þýðir.

Leikurinn verður í Egilshöll og hefst stundvíslega kl.19:30 og eru allir áhugamenn um íshokkí hvattir til að mæta á svæðið og hverja sína menn áfram !!! - Áfram SR !!