Fréttir

Total items: 1194

SR-ingar sigursælir um helgina!

Dags: 29.01.2007 16:17


Ekki var sérlega beisin staðan hjá Meistaraflokknum eftir 2 leikhluta í leik helgarinnar þar sem Akureyringar bitu hraustlega frá sér og hefðu, ef SR-ingar hefðu lagst á bakið og gefist upp, náð að saxa verulega á forskot Íslandsmeistaranna.  SR-ingar virtust frekar illa fyrirkallaðir í leik sínum á laugardagskvöldið og virtist allur áhugi vera víðsfjarri.  Hvort að það hafi verið nýliðinn landsleikur í handbolta, þar sem Íslendingar sigruðu, eða hreint áhugaleysi þar um að kenna.  SA-menn (og kona) mættu með ágætis lið til leiks þrátt fyrir að þónokkrir leikmenn SA höfðu ekki færi á að mæta vegna meiðslana eða veikinda.  Denni, þjálfari SA, brá á það ráð að setja Söru Smiley í raðir meistaraflokks karla og verður það að segjast að stóð hún sig með prýðir.  Meistraflokkur SR þótti þetta nokkuð sérstakt og vissu á köflum ekki hvernig ætti að meðhöndla kvennmann í íshokkí... en ekki lengi.  Einsog áður sagði voru Akureyringar heldur atkvæða meiri fyrstu tvo leikhlutana og náðu að skora alls 3 mörk á móti 1 hjá SR.  SR-ingar börðu sig saman milli annars og þriðja leikhluta og mættu inná ísinn sem nýtt og endurbætt lið og spiluðu einsog hershöfingjar það sem eftir lifði leiks og unnu leikinn 4 - 3.
Þeir sem skoruðu fyrir SR voru Daniel Kolar, Stefán Hrafnsson, Helgi Páll Þórisson og Guðmundur Björgvinsson.   Einnig um helgina var hið stóra Laugardalsmót þar sem yngstu flokkar íshokkífélaganna á Íslandi öttu kappi við mikin fögnuð foreldra og aðstandenda.  Mótið gekk vel fyrir sig einsog von er og vísa.  Hámarkið á mótinu var mögnuð pizzaveisla þar sem ungviðið torgaði heljarinnar býsn af pizzum.  Allir vonandi sælir og glaðir eftir það.