Dags: 25.01.2007 21:58
Næstu helgi verður hokkímót haldið í Laugardalnum. Þetta er mót fyrir börn í 5-7 flokk. SA og Björnin heimsækja okkur og keppt verður á laugardag og sunnudag. Sjá dagskrá hér til hliðar á síðunni. Í lok keppni á sunnudag verður svo verðlaunaafhending og pizzuveisla fyrir keppendur. Einnig verður verðlaunað fyrir snyrtilegasta klefann, prúðmennsku á ís og utan ís. Þetta eru skemmtileg mót og foreldrar hvattir til að koma og styðja við bakið á keppendum, boðið verður upp foreldrakaffi.