Dags: 23.01.2007 00:01
Á morgun, miðvikudag, munu Bjarnarmenn sækja SR-ingar heim í Laugardalinn. Þeir Bjarnarmenn ættu að þekkja þar alla króka og kima enda ekki langt síðan að Bjarnarfólk deildi húsakynunum með SR-ingum í Laugardal. Ekki er þar með sagt að Bjarnarmenn fái auðveldan leik því SR-ingar, sen hafa verið sigursælir undanfarið, munu eflaust veit þeim mikla og góða keppni. Bjarnarmenn hafa reyndar verið að sækja í sig veðrið og ber sigur þeirra, á SA-mönnum, núna um nýliðna helgi vel þess merki. Þrátt fyrir brottfall úr þeirra röðum undanfarin misseri hefur það nægt til að draga vígtennurnar úr þeim, heldur hafa þeir verið að eflast ef eitthvað er. Bjarnarmenn munu þó vera eitthvað fáliðaðir á morgun þar sem 3 leikmenn úr þeirra röðum uppskáru Leikdóm í leik þeirra við SA og sitja þeir því uppí stúku. Þetta mun án efa gefa þeim yngri í meistaraflokki tækifæri til að láta ljós sitt skína.
SR-ingar hafa æft gríðarlega vel undanfarið og hafa tveir síðustu sigrar sínt að sitjandi Íslandameistarar eru ekki á því að sleppa hendinni af bikarnum... allavega ekki í bráð. Innkoma Stefáns "Rauða" Hrafnssonar hefur verið einsog búist, eitthvað af mörkum og slatti af refsimínútum, svo og "endurkoma" Þórhalls Viðarsonar úr framlengdu jólafríi með tilheyrandi slappskotum og tæklingum.
Leikurinn hefst kl.20:00 á morgun, miðvikudag, í Skautahöllinni í Laugardal. Allir áhugamenn um íshokkí eru hvattir til að mæta á svæðið og hvetja sína menn til dáða !!
Áfram SR!!!