Fréttir

Total items: 1194

MFL: Fyrsti leikur SR í meistaraflokki í ár!

Dags: 13.01.2007 00:28


img_0228.jpg

SR-ingar leggja í'ann rétt fyrir hádegi í dag á leið norður til Akureyrar. Er þetta fyrsti leikur meistraflokks SR síðan 29.nóvember (!!!) þegar SR splaði við Björninn í Egilshöll og tók frekar léttan sigur 9 - 3.
SR-ingar hafa ekki á sjö dagana sæla gegn SA undanfarið þar sem síðustu viðureignir þessara liða hafa endað með sigri norðanmanna. Hver mann ekki eftir leikjatvennunni sem var 19. og 20.nóvember (!!!) þar sem SA menn spiluðu á mótu tveimur gerólíkum liðum. Á laugardagskvöldi mættu þeir norðanmenn fullskipuðu og andlausu liði SR-ingar sem áttu lítil eða engin svör við leik SA-manna, sem fóru með sigur 6 - 3. Á sunnudagskvöldið þar á eftir var SR-liðið án tékknensku þrennunar og Þórhalls varnarjaxl og virtist allur vindur farinn úr leikmönnum SR. Aldeilis ekki. Akureyringar áttu í fullu fangi við að halda SR-ingum í skefjum sem spiluðu fanta vel og stríddu SA-mönnum gríðarlega á köflum. En ekki var að spyrja að leikslokum þar sem fáliðaðir SR-ingar gátu ekki haldið út heilan leik með þessu móti og SA-menn rétt náðu að vinna þann leik með 7 mörkum gegn 3 SR-inga.

Að öllu gríni slepptu þá eru SR-ingar búnir að endurheimta Gauta Þormóðsson frá Svíþjóð þar sem hann lá í góðu sænsku yfirlæti hjá Emil nokkrum Alengard. Eitthvað fékk hann að spreyta sig með þeim sænsku en ekki er útlit að hann nái inn þetta tímabil en er lofandi fyrir það næsta. SR-ingar hafa æft vel undanfarið og er ætluninn að fara norður og sækja sigur.... og ekkert annað. Leikurinn hefst kl.20:00 þar nyðra og er í Skautahöllinni á Akureyri (hvar annarstaðar). Allir hokkí áhugamenn eru hvattir til þess að mæta á svæðið og hvetja sína menn til dáða.

Áfram SR !!