Fréttir

Total items: 1194

U20 strákarnir komnir heim og....

Dags: 19.12.2006 22:30


... vekja athygli í íslenskum blöðum fyrir annað en spilamennsku í íshokkí. Þess er getið í Fréttablaðinu að nokkrir unglingalandsliðsmenn hafi tekið 2 síguna drengi uppá armana og farið með þá í verslunarleiðandur og keypt á þá fatnað og matvæli. Í þeirri grein er ekki farið með neinar fleipur og sýndu strákarnir af sér mikið örlæti og góðmensku. Gott og blessað og í anda jólanna að gera það. En þennan sama dag þá spiluðu strákarnir við Rúmena sem var þeirra síðasti leikur. Leikurinn fór 5 - 0 fyrir heimamönnum en þess bera að geta að íslenska liðið spila undirmannað þar sem hluti liðsins lá uppi á hótelherbergi með magapest og megnið af þeim sem spiluðu leikinn voru annaðhvort nýstaðnir uppúr veikindum eða voru komnir með byrjunar einkenni þessarar "rúmeníu-veiru". Strákarni reyndu hvað þeir máttu að halda aftur af hressu rúmensku liði en loturnar fóru (1-0)(2-0)(2-0). Besti maður leiksins var Egill Þormóðsson.
Að þeim leik loknum var loka athöfninn og á þeirr athöfn var Úlfar Andrésson valin besti leikmaður liðsins á mótinu. Hann sýndi mikinn dugnað og góða íþróttamennsku jafnt innan íss og utan.
Íslenska liðið náði 5.sæti í riðlinum og þar með áframhaldandi sæti í riðlinum að ári. Ástralar féllu niður í 3.deild og Ungverjar, sem komu niður úr 1.deild í fyrra, fóru upp aftur með nær fullt hús stiga.

Núna er komið jólafrí hjá þessum leikmönnum og öðrum, en ekki er ólíklegt að leikmenn hittist á laun og taki svo sem einn jólahokkíleik svona rétt undir jól.