Fréttir

Total items: 1194

ISL-U20: Óverskuldað tap gegn spánverjum

Dags: 11.12.2006 23:08


Íslenska landsliðið sýndi góðan leik í dag gegn spánverjum þrátt fyrir naumt tap. Spánverjar áttu í miklum erfiðleikum með að spila sig í gegnum íslenska víkinga sem sýndu þeim enga miskun. En þrátt fyrir mikla eljusemi og gott samspil megnið af leiknum endaði leikurinn 4 - 3 fyrir þeim spænsku. Margir leikmenn liðsins stigu upp til sýndu sinn allra besta leik. Úlfar Andrésson, sem var valinn maður íslenska liðsins í leiknum, sýndi fanta góðan leik, vann vel, og skoraði gott og mikilvægt mark fyrir Ísland.

Refsimínútur voru fullmargnar hjá íslenska liðinu og til marks um það voru þeir 10 mínútur í refsiboxinu í síðasta leikhluta og hefur það eflaust riðið baggamuninn í leiknum þegar fram í sótti.

Þeir sem skoruðu fyrir Ísland í leiknum voru: Emil Alengaard, Þorsteinn Björnsson og Úlfar Andrésson.

Á morgun mun Ísland spila við Ástralíu og verður það baráttuleikur fyrir íslenska landsliðið þar sem Ástralir, Spánverjar og Íslendingar munu berjast um að halda sér í riðlinum þar sem Ungverjar, sem voru að koma niður úr fyrstu deild, eru gríðar sterkir og Rúmenar eru með mjög frískt lið gætu verið erfiðir.

Leikurinn á morgun ætti að verða gríðarspennandi og stefnan er tekinn á sigur.... og ekkert annað.

Áfram Ísland !!