Fréttir

Total items: 1194

ISL-U20: Fyrsti leikur í kvöld við Spánverja.

Dags: 11.12.2006 10:32


photo_0087.jpg

Fyrsti leikur U20 landsliðs íslands er í dag kl.15:00 að íslenskum tíma. Í dag og gær hafa strákarnir hvílt sig vel og æft vel. Farangurinn hefur nær allur skilað sér fyrir utan eina tösku og stendur leit yfir enn sem stendur að þeirri tösku.
Flest allir eru nokkuð frískir fyrir leikinn fyrir utan aðal þjálfarann, Ed, þar sem hann fékk einhverja maga pest sem hefur hrjáði hann í nær alla nótt. Helgi Páll stýrði morgunæfingum en þar voru æfð powerplay og penalty-kill af miklum móð.

Spánverjar hafa verið sigursælir gegn íslendingum undanfarinn ár en strákarnir eru staðráðnir og einbeittir að sýna sinn allbesta leik í dag og gaman verður að sjá hvernig liðið mun standa sig.
Aðbúnaður á hótelinu og svellinu er einsog best verður á kosið, t.d er skautahöllinn í 30 sek (Sekúndur) frá hótelinu og maturinn er í betra lagi.