Fréttir

Total items: 1194

U20: Landsliðið komið á leiðarenda....

Dags: 10.12.2006 02:01


Landslið skipað leikmönnum 20 ára og yngri skilaði sér inná hótel kl.02:00 á íslenskum tíma eftir að hafa verið á ferðalagi frá því kl.07 morguninn áður. Eftir frekar þægilegt flug frá Íslandi til Frakklands tók 4 klukkustunda leit að Innskránigar-borðinu (Check-inn-desk) fyrir okkar flug til Rúmeníu og fannst það fyrir rest og flugið til Rúmeníu gekk áfalla laust fyrir sig.
Þegar til Rúmeníu var komið uppgötvaðist það einhver farangur hafði orðið eftir í listaborginni París og lægju þar í vel-lystingum franskra starfsmanna flugvallarins. Eftir mikið japl, jam og fuður náðist loksins að vinna einhverja skrifstofu þar sem var viti borinn manneskja sem átti að taka á móti okkar kvörtun þess efnis að ekki hafi allur farangurinn skilað sér. Eftir rétt rúma tveggja klukkustunda pappírsvinnu náði landsliðið að koma sér af stað í 250 KM rútuferð í svarta myrkri og þykkri þoku. Rútubílstjórinn steig mjög létt á bensíngjöfina og meðalhraðinn var rétt um og yfir 60 km á klukkustund. En þrátt fyrir þetta hafa strákarnir skemmt sér konunglega með ýmsu móti í þessari för og t.d var splaður hinn víðfærði Frægramanna leikur "Celebrity-game" sem tók alls 3 klst að ljúka... eða því sem svaraði einni rútuferð.
Núna eru strákarnir og fararstjórn í þann mund að leggja höfuðið á koddann og fá verðskuldaða hvíld fyrir komandi átök.
Fyrsti leikur liðsins verður gegn Spánverjum þann 11.desember kl.17 að staðartíma (sem er 2 klst á undan Íslandi).

Meira síðar.