Fréttir

Total items: 1194

7 leikmenn SR í U20 landsliði Íslands

Dags: 06.12.2006 09:55


SR-ingar geta verið sáttir við sinn hlut í U20 landsliði Íslands þetta árið. Alls eru 7 leikmenn sem koma úr röðum SR-inga. Það eru þeir Aron Leví Stefánsson sem mun standa vaktina á milli stangana ásamt Inga Ólafssyni, sem spilar með Birninum þetta árið en er að upplagi frá SR.  SR-ingar hafa engan varnarmann í landsliðinu en þar sitja vaskir menn frá SA og Birninum.
SR-ingar eru atkvæða miklir í sókininni en þar eru Þorsteinn Björnssons, Gauti Þormóðsson svo og bróðir hans Egill, Úlfar Andrésson, Steinar Páll Veigarsson og Pétur Maack. Fleiri "gamlir" SR-ingar eru einnig í liðinu einsog Sindri Már Björnsson sem spilar með SA þetta árið og Sigmundur Sveinsson, en hann er að upplagi SA-maður sem flúðir til Reykjavíkur síðasta vetur og náði sér í menntun og flutti hana síðan inn til Eyjafjarðar í ár. Hægt er að nálgast lista yfir liðið á vef ÍHÍ, www.ihi.is
Þjálfararnir Ed Maggiacomo og Helgi Páll hafa setið yfir tölulegum upplýsingum yfir andstæðingana og eru líkur á að Ísland nái að halda sér í riðlinum ef liðið spilar vel á þessu móti.

Áfram Ísland !!