Fréttir

Total items: 1194

MFL: SR sækir Björninn heim !

Dags: 28.11.2006 11:14


SR-ingar ætla að skunda fylktu liði uppí Egilshöll og takast á við Björninn í einum síðasta íshokkí leik þessa árs (en ekki tímabilsins). SR-ingar hafa verið sigursælir gegn Birninum undanfarið ef undanskilinn fyrsti leikur liðanna þar sem Björninn fór með sigur af hólmi. Styrkur SR-inga hefur vaxið ásmeginn eftir átök þarsíðustu helgar þar sem þeir öttu kappi við SA í tveimur viðureignum sömu helgina. Í seinni leik þeirra liða komu vængbrotnir SR-ingar til leiks, útlendinga lausir og einum stöndugum varnarmanni færri. Rétt rúmar 2 línur hjá SR stóðu vel í SA-mönnum sem voru með fullann bekk af frískum leikmönnum sem reyndu hvað þeir máttu til að buga SR-ingana. Framan af náðu SR-ingar að halda aftur af SA-mönnum en fyrir rest náðu þeir að auka forskotið og á endanum vinna leikinn. Meistaraflokkur SR sýndi það í þessum leik að þeir geta vel spilað án erlendu leikmannanna og vel undirmannaðir.
SR-ingar eru hvergi af baki dottnir og eru að gíra sig upp fyrir átökinn við Björninn. Leikurinn byrjar kl.19:30 Í kvöld í Egilshöllinni. SR-ingar eru hvattir til að mæta í höllina og hvetja sína menn áfram til sigurs. Áfram SR !!